UM FLUGBEITT
Ég heiti Sveinbjörn Grétarsson og er maðurinn á bak við flugbeitt.is.
Ég er að brýna í aukavinnu og er með aðstöðu í 50 fermetra bílskúr heima hjá mér á Kjalarnesi.
Eftir að hafa brýnt allt fyrir sjálfan mig og vini um árabil, fjárfest í miklum búnaði og eytt ómældum tíma í að fræða mig um allt sem við kemur brýningum ákvað ég að byrja bjóða upp á þessa þjónustu fyrir almenning og setti þessa vefsíðu í loftið í byrjun árs 2022.
Ég legg metnað minn í að vanda vel til verka og nota sérstakan og fjölbreyttan búnað eftir því hvað verið er að brýna.
HNÍFAR: 2.500 - 4.000 kr.
Ég brýni allar gerðir hnífa svo þeir verða beittari en nýir. Geri við skemmda hnífa, bý til nýja egg sem mótuð er eftir því hvað á að nota hnífinn í. Ég nota mest Tormek-8 vatnsbrýni sem sér til þess að eggin á hnífnum hitni ekki og skemmist við brýninguna sem tryggir að gæði stálsins haldist bit hnífsins endist lengur. Hallinn á egginni skiptir miklu máli upp á að tryggja besta árangur og endingu hnífsins í þeim verkum sem hann er notaður í. Eins er mjög mikilvægt hreinsa vel og á sem bestan hátt gráðuna (en. burr) af egginni. Það tryggi ég með ýmsum gerðum af leðri og massa í lok brýningar. Einnig er ég með öfluga smásjá sem gerir mér kleift að skoða eggina mjög nákvæmlega. Það fer enginn hnífur frá mér nema í fullkomnu lagi og flugbeittur.Ég vanda mjög til verka og gef engan afslátt á gæði vinnu þó að um ódýran hníf sé að ræða. Það tekur mig 15 til 20 mínútur að brýna hvern hníf og því rukka ég 2 til 4 þúsund krónur á hvern hníf. Ef viðskiptavinur vill fá marga hnífa brýnda gef ég afslátt.
Alltaf er hægt að hafa samband og fá tilboð í það sem á að brýna.
SKÆRI: 2.500 - 5.000 kr.
Ég brýni allar tegundir af skærum fyrir hárgreiðslustofur, hundasnyrta, fatahönnuði og klæðskera. Ég nota sérstakan búnað, Twice as sharp - Ookami Gold, frá Wolff industry í USA sem tekur eins lítið stál af skærunum og mögulegt er og pólerar svo skærin á eftir. Öll skæri hreinsuð, smurð og stífleiki stilltur. Á úrval af varahlutum.Ég rukka 2.500 til 5.000 kr. fyrir hver skæri, fer eftir týpu og tegund.
Hægt er að hafa samband og fá verðtilboð. Ef brýna á mörg skæri lækkar verðið.
ANNAÐ:
Brýni einnig sporjárn, garð- trjá- og grasklippur, slátturvélahnífa og fleira. Skoða allt.
Hnífaviðgerð
Bjössi skilaði óaðfinnanlegu verki á japönskum hníf sem brotnaði 3-4 mm af egginni Fullkomlega lagað og hnífurinn eins og nýr Takk fyrir takk Geirarður LongFrábær þjónusta, vel gert
Við hjá Hundaheppni fengum æðislega þjónustu og skærin voru perfect sem við fengum til baka ❤️ Maria Björg TamimiFrábær vinnubrögð!
Ég fór með gamlan veiðihníf sem ég taldi ónýtan. Þessi hnífur er gjöf sem mér þykir verulega vænt um og vildi athuga hvort eitthvað væri hægt að gera. Hann kom eins og nýr frá Flugbeitt og er kominn í notkun aftur. Frábær vinnubrögð! Ásmundur SveinssonMjög ánægð
Ég hef nokkrum sinnum farið með skærin sem ég nota í dýrasnyrtingar til Sveinbjörns og hef alltaf verið mjög ánægð með brýninguna og þjónustuna! María LísaBetri en nýjir
Ég fór með fjóra hnífa til Bjössa þar á meðal einn sem ég hef átt í rúmlega 40 ár og var orðin ansi lúinn. Allir hnífarnir komu til baka betri en nýir, hafa aldrei verið nálægt því svona beittir. Frábær þjónustua. HaukurSaumaskærin
Ég á saumaskæri sem enginn má snerta. Svo fór ég með eldhúskubbinn með hnífum og skærum til Bjössa. Eftir að þau komu til baka, var ég með tuskubút í höndunum og greip óvart eldhússkærin og klippti. Vá, þau voru betri en saumaskærin. GuðrúnSkæri
VáváVá fórum með skæri sem konan notar sem hundasnyrtir til Sveinbjörns og sjáum heldur betur ekki eftir því alveg einsog ný! Mæli 100% með honum . Marinò OddurTveir bitlausir urðu súperskarpir
2 stk japanskir algjörlega eins og nýjir eftir meðhöndlun mæli 100% með! Eyjolfur JóhannssonVel unnið verk
Takk Sveinbjörn, þú ert snillingur að brýna. Skærin mín eru æðisleg bæði tvö, ég þakka þér kærlega fyrir vel unnið verk. HannaFrábær vinnubrögð
Gamli góði veiðihnífurinn minn sem var á leið í ruslið er betri en nýr eftir meðhöndlun hjá Sveinbirni. Kominn nýr oddur á hann og hægt að spegla sig í egginni. Ég hefði ekki trúað þessu hefði einhver sagt mér þetta. Jón ArnarFrábær þjónusta
Flugbeitt er orð að sönnu… mig hefði ekki órað fyrir að hægt væri að brína gömlu hárskærin mín svo vel að þau eru orðin eins og ný Fljót og góð þjónusta og fagmennska í fyrirrúmi Iris SveinsdóttirSkarpastur í skúffunni
Ég átti tvo japanska hnífa sem voru rándýrir þegar ég keypti þá fyrir 10 árum síðan. Þeir voru góð fjárfesting samt og búnir að standa sig vel. Reyndar með mikilli notkun hafði brotnað aðeins úr stóra hnífnum og hann misst oddinn. Bjössi tók báða hnífana og gerði þa upp. Stóra hnífinn þurfti hann ná... meira EvaGóður brýnari
Að kaupa í innbú getur verið dýrt þannig maður velur ódýrasta mátann. Sem var eitthvað sem ég gerði og keypti alla mína hnífa í ikea. Þeir virkuðu en maður þurfti að vinna fyrir ódýra verðinu með vöðvabólgu i marga daga eftir að hafa skorið dúnmjuka hreindýra steik. Eftir að Bjössi brýndi ikea hnífa... meira Ída Guðrún Atladóttir